Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1146, 123. löggjafarþing 183. mál: skaðabótalög (margfeldisstuðull við bótaútreikning o.fl.).
Lög nr. 37 19. mars 1999.
Þegar fjárhæð bóta fyrir varanlegan miska er ákveðin skal litið til þess hvers eðlis og hversu miklar afleiðingar tjóns eru frá læknisfræðilegu sjónarmiði, svo og til erfiðleika sem það veldur í lífi tjónþola. Varanlegur miski skal metinn til stiga og skal miða við heilsufar tjónþola eins og það er þegar það er orðið stöðugt.
Bætur fara eftir aldri tjónþola á tjónsdegi og skulu vera þessar fyrir algeran, 100 stiga, miska:
Við lægra miskastig lækka fjárhæðir þessar í réttu hlutfalli. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að ákveða hærri bætur, allt að 50% hærri en samkvæmt töflunni.
Um greiðslur frá þriðja manni fer eftir 4. mgr. 5. gr.
Bætur fyrir varanlega örorku skal meta til fjárhæðar á grundvelli örorkustigs tjónþola skv. 5. gr., árslauna hans skv. 7. gr. og eftirfarandi töflu, þannig að margfölduð séu saman örorkustig, árslaun og stuðull töflunnar í samræmi við aldur tjónþola á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við:
Sé tjónþoli orðinn 75 ára á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við, en hafi stundað vinnu þegar tjón varð, skal ákvarða honum bætur skv. 1. mgr. og skal þá notaður margfeldisstuðullinn 0,667.
Bótafjárhæðin skal greidd í einu lagi.
Árslaun til ákvörðunar bóta skv. 6. gr. skulu teljast vera meðalatvinnutekjur tjónþola að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð, leiðrétt samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við.
Árslaun skulu þó metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi og ætla má að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola.
Þrátt fyrir ákvæði 1.–2. mgr. skal ekki miða við lægri árslaun en tilgreint er í þessari töflu:
Ekki skal miða við hærri árslaun en 4.500.000 kr.
Bætur til barna og tjónþola, sem að verulegu leyti nýta vinnugetu sína þannig að þeir hafa engar eða takmarkaðar vinnutekjur, skal ákvarða á grundvelli örorkustigs skv. 5. gr. Bætur skulu ákveðnar eftir reglum 5.–7. gr.
Í 4. og 6. gr. eru töflugildin miðuð við upphaf aldursárs. Við útreikning bóta skal reiknað með að margfeldisstuðull breytist hlutfallslega jafnt milli töflugilda.
Mat á örorku. Örorkunefnd.
Þegar fyrir liggur sérfræðilegt álit um örorku- og/eða miskastig tjónþola, eða þá læknisfræðilegu þætti skv. 2. og 3. gr. sem meta þarf til þess að uppgjör bóta samkvæmt lögum þessum geti farið fram, getur hvor um sig, tjónþoli eða sá sem krafinn er bóta, borið álitið undir örorkunefnd. Heimilt er að óska álits örorkunefndar um ákvörðun örorku- og/eða miskastigs, án þess að fyrir liggi sérfræðilegt álit, ef málsaðilar standa sameiginlega að slíkri beiðni.
Í örorkunefnd eiga sæti þrír menn sem skipaðir eru af dómsmálaráðherra til sex ára í senn. Skulu tveir nefndarmanna vera læknar, en einn lögfræðingur og er hann formaður nefndarinnar. Formaður skal fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti hæstaréttardómara. Ráðherra skipar varamenn eftir sömu reglum og aðalmenn. Ráðherra er heimilt, að ósk nefndarinnar, að fjölga nefndarmönnum tímabundið í því skyni að tryggja að afgreiðsla mála dragist ekki. Um hæfi nefndarmanna til þess að fara með mál skal fara eftir reglum laga um sérstakt hæfi dómara.
Örorkunefnd skal semja töflur um miskastig.
Ráðherra setur reglugerð um starfsháttu örorkunefndar. Í reglugerðinni skal m.a. vera heimild fyrir nefndina til þess að kveðja lækna og aðra sérfróða menn til starfa í þágu nefndarinnar og jafnframt ákveðið hvernig staðið skuli að birtingu helstu álitsgerða hennar. Í reglugerð skal og kveða á um gjald fyrir álitsgerðir nefndarinnar.
Bætur fyrir þjáningar, varanlegan miska, tímabundið atvinnutjón og missi framfæranda bera vexti frá því að tjón varð. Bætur fyrir varanlega örorku bera vexti frá upphafsdegi metinnar örorku skv. 5. gr. Vextirnir skulu nema 4,5% á ári.
Heimilt er að láta þann sem:
Þeim sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veldur dauða annars manns má gera að greiða maka, börnum eða foreldrum miskabætur.
Fjárhæðir samkvæmt lögum þessum eru miðaðar við lánskjaravísitölu eins og hún var 1. júlí 1993 (3282) og taka þær sömu breytingum og mælt er fyrir um í 15. gr., sbr. einnig lög nr. 12/1995, um vísitölu neysluverðs.
Ákvæði til bráðabirgða, sbr. lög nr. 42/1996 og nr. 149/1997, fellur brott.
Þingskjal 1146, 123. löggjafarþing 183. mál: skaðabótalög (margfeldisstuðull við bótaútreikning o.fl.).
Lög nr. 37 19. mars 1999.
Lög um breyting á skaðabótalögum, nr. 50 19. maí 1993, sbr. lög nr. 42 13. maí 1996.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á eftir orðunum „veikinda- eða slysaforföllum“ í 2. mgr. kemur: 60% af greiðslu frá lífeyrissjóði, greiðslur frá sjúkrasjóði.
2. gr.
1. og 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo: Greiða skal þjáningabætur fyrir tímabilið frá því að tjón varð þar til heilsufar tjónþola er orðið stöðugt, 1.300 kr. fyrir hvern dag sem hann er rúmfastur og 700 kr. fyrir hvern dag sem hann er veikur án þess að vera rúmfastur. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að greiða þjáningabætur þótt tjónþoli sé vinnufær.3. gr.
4. gr. laganna orðast svo:Þegar fjárhæð bóta fyrir varanlegan miska er ákveðin skal litið til þess hvers eðlis og hversu miklar afleiðingar tjóns eru frá læknisfræðilegu sjónarmiði, svo og til erfiðleika sem það veldur í lífi tjónþola. Varanlegur miski skal metinn til stiga og skal miða við heilsufar tjónþola eins og það er þegar það er orðið stöðugt.
Bætur fara eftir aldri tjónþola á tjónsdegi og skulu vera þessar fyrir algeran, 100 stiga, miska:
Aldur | Krónur | Aldur | Krónur |
49 ára og yngri | 4.000.000 | 62 ára | 3.480.000 |
50 ára | 3.960.000 | 63 ára | 3.440.000 |
51 árs | 3.920.000 | 64 ára | 3.400.000 |
52 ára | 3.880.000 | 65 ára | 3.360.000 |
53 ára | 3.840.000 | 66 ára | 3.320.000 |
54 ára | 3.800.000 | 67 ára | 3.280.000 |
55 ára | 3.760.000 | 68 ára | 3.240.000 |
56 ára | 3.720.000 | 69 ára | 3.200.000 |
57 ára | 3.680.000 | 70 ára | 3.160.000 |
58 ára | 3.640.000 | 71 árs | 3.120.000 |
59 ára | 3.600.000 | 72 ára | 3.080.000 |
60 ára | 3.560.000 | 73 ára | 3.040.000 |
61 árs | 3.520.000 | 74 ára eða eldri | 3.000.000 |
Um greiðslur frá þriðja manni fer eftir 4. mgr. 5. gr.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- 4. mgr. orðast svo:
5. gr.
6. gr. laganna, sbr. lög nr. 42/1996, orðast svo:Bætur fyrir varanlega örorku skal meta til fjárhæðar á grundvelli örorkustigs tjónþola skv. 5. gr., árslauna hans skv. 7. gr. og eftirfarandi töflu, þannig að margfölduð séu saman örorkustig, árslaun og stuðull töflunnar í samræmi við aldur tjónþola á þeim tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við:
Aldur | Stuðull | Aldur | Stuðull | Aldur | Stuðull |
0 | 11,438 | 25 | 15,101 | 50 | 7,834 |
1 | 11,746 | 26 | 14,567 | 51 | 7,626 |
2 | 12,064 | 27 | 14,161 | 52 | 7,370 |
3 | 12,389 | 28 | 13,750 | 53 | 7,139 |
4 | 12,724 | 29 | 13,474 | 54 | 6,932 |
5 | 13,067 | 30 | 12,813 | 55 | 6,678 |
6 | 13,420 | 31 | 12,595 | 56 | 6,378 |
7 | 13,782 | 32 | 12,367 | 57 | 6,037 |
8 | 14,155 | 33 | 12,150 | 58 | 5,687 |
9 | 14,537 | 34 | 11,915 | 59 | 5,329 |
10 | 14,929 | 35 | 11,678 | 60 | 4,960 |
11 | 15,332 | 36 | 11,433 | 61 | 4,581 |
12 | 15,746 | 37 | 11,180 | 62 | 4,211 |
13 | 16,171 | 38 | 10,988 | 63 | 3,841 |
14 | 16,608 | 39 | 10,784 | 64 | 3,451 |
15 | 17,057 | 40 | 10,577 | 65 | 3,038 |
16 | 17,517 | 41 | 10,358 | 66 | 2,567 |
17 | 17,990 | 42 | 10,083 | 67 | 2,067 |
18 | 18,476 | 43 | 9,851 | 68 | 1,994 |
19 | 18,031 | 44 | 9,565 | 69 | 1,902 |
20 | 17,572 | 45 | 9,265 | 70 | 1,783 |
21 | 17,106 | 46 | 9,014 | 71 | 1,626 |
22 | 16,626 | 47 | 8,750 | 72 | 1,412 |
23 | 16,130 | 48 | 8,440 | 73 | 1,109 |
24 | 15,619 | 49 | 8,116 | 74 | 0,667 |
Bótafjárhæðin skal greidd í einu lagi.
6. gr.
7. gr. laganna orðast svo:Árslaun til ákvörðunar bóta skv. 6. gr. skulu teljast vera meðalatvinnutekjur tjónþola að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð, leiðrétt samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við.
Árslaun skulu þó metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi og ætla má að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola.
Þrátt fyrir ákvæði 1.–2. mgr. skal ekki miða við lægri árslaun en tilgreint er í þessari töflu:
Aldur | Kr. |
66 ára og yngri | 1.200.000 |
67 ára | 1.100.000 |
68 ára | 1.000.000 |
69 ára | 900.000 |
70 ára | 800.000 |
71 árs | 700.000 |
72 ára | 600.000 |
73 ára | 500.000 |
74 ára | 400.000 |
7. gr.
8. gr. laganna, sbr. lög nr. 42/1996, orðast svo:Bætur til barna og tjónþola, sem að verulegu leyti nýta vinnugetu sína þannig að þeir hafa engar eða takmarkaðar vinnutekjur, skal ákvarða á grundvelli örorkustigs skv. 5. gr. Bætur skulu ákveðnar eftir reglum 5.–7. gr.
8. gr.
9. gr. laganna orðast svo:Í 4. og 6. gr. eru töflugildin miðuð við upphaf aldursárs. Við útreikning bóta skal reiknað með að margfeldisstuðull breytist hlutfallslega jafnt milli töflugilda.
9. gr.
10. gr. laganna ásamt fyrirsögn orðast svo:Í örorkunefnd eiga sæti þrír menn sem skipaðir eru af dómsmálaráðherra til sex ára í senn. Skulu tveir nefndarmanna vera læknar, en einn lögfræðingur og er hann formaður nefndarinnar. Formaður skal fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti hæstaréttardómara. Ráðherra skipar varamenn eftir sömu reglum og aðalmenn. Ráðherra er heimilt, að ósk nefndarinnar, að fjölga nefndarmönnum tímabundið í því skyni að tryggja að afgreiðsla mála dragist ekki. Um hæfi nefndarmanna til þess að fara með mál skal fara eftir reglum laga um sérstakt hæfi dómara.
Örorkunefnd skal semja töflur um miskastig.
Ráðherra setur reglugerð um starfsháttu örorkunefndar. Í reglugerðinni skal m.a. vera heimild fyrir nefndina til þess að kveðja lækna og aðra sérfróða menn til starfa í þágu nefndarinnar og jafnframt ákveðið hvernig staðið skuli að birtingu helstu álitsgerða hennar. Í reglugerð skal og kveða á um gjald fyrir álitsgerðir nefndarinnar.
10. gr.
2. mgr. 13. gr. laganna fellur brott.11. gr.
Lokamálsliður 2. mgr. 15. gr. laganna fellur brott.12. gr.
1. mgr. 16. gr. laganna orðast svo:Bætur fyrir þjáningar, varanlegan miska, tímabundið atvinnutjón og missi framfæranda bera vexti frá því að tjón varð. Bætur fyrir varanlega örorku bera vexti frá upphafsdegi metinnar örorku skv. 5. gr. Vextirnir skulu nema 4,5% á ári.
13. gr.
26. gr. laganna orðast svo:Heimilt er að láta þann sem:
- af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veldur líkamstjóni eða
- ábyrgð ber á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu annars manns
Þeim sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi veldur dauða annars manns má gera að greiða maka, börnum eða foreldrum miskabætur.
14. gr.
Á eftir 28. gr. laganna kemur ný grein sem orðast svo:Fjárhæðir samkvæmt lögum þessum eru miðaðar við lánskjaravísitölu eins og hún var 1. júlí 1993 (3282) og taka þær sömu breytingum og mælt er fyrir um í 15. gr., sbr. einnig lög nr. 12/1995, um vísitölu neysluverðs.
15. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. maí 1999 og eiga við um skaðabótaábyrgð vegna tjóns sem rakið verður til bótaskylds atviks eftir gildistöku laganna.Ákvæði til bráðabirgða, sbr. lög nr. 42/1996 og nr. 149/1997, fellur brott.
Samþykkt á Alþingi 10. mars 1999.